Ég heiti Pála Margrét og er fædd árið 1994. Ég kem frá Sauðárkróki en hef einnig verið mikið í Aðaldal í Þingeyjarsýslu. Ég útskrifaðist sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum og stunda núna nám við Uppeldis- og menntunarfræði í Háskóla Íslands.
Nú hef ég lokið fyrsta deginum og ég sver að mér er strax farið að líða betur. Ég borðaði reyndar mjög lítið í gær, aðallega ávexti og grænmeti, en man líka ekki eftir að hafa losnað svona hratt við kvef. Í dag var fyrsta skrefið að finna nýja gerð af chia graut sem myndi passa inní þetta mataræði, en ég ætla í bili að sleppa keyptri mjólk, þó hún sé örugglega ekki mjög slæm, en þó inniheldur slatta af aukaefnum. Ég prófaði fyrir nokkrum vikum avókadóbúðing með chiafræjum, og er þessi chia grautur undir áhrifum frá honum.
Í gærkvöldi byrjaði ég á því að setja chia fræ í vatn, til að geta notað þau í morgunmatinn (svo ég þyrfti ekki að bíða!). Ég setti 4 msk af chia fræjum í krukku sem tekur u.þ.b. hálfan líter. Í morgun leit þetta svona út:
Morgunmaturinn sem ég gerði í morgun var ofureinfaldur, ég skellti hálfu epli í töfrasprotann (flysjuðu og brytjuðu) og setti út í það þrjár matskeiðar af chia fræjunum úr krukkunni. Yfir þetta setti ég síðan kókosflögur.
Margir myndu nú kannski segja að þetta væri svolítið eins og barnamatur, en mér finnst þetta mjög gott 😉 Ég ætla að reyna að gera þetta fjölbreyttara og reyni að setja inn uppskrift af svona morgungraut með avókadó á næstunni. Einnig er hægt að gera þetta matarmeira með haframjöli (glúteinlausu) en ég þarf að leita af því hér á Króknum.
Annars er margt annað sem ég er að reyna að bæta mig í núna, annað en hreint og beint mataræðið. Ég ætla að drekka meira vatn, og byrja alla daga núna á einni svona flösku.
Svona flaska fæst í Fjarðakaup og Iceland, og mögulega á fleiri stöðum. Ég er ótrúlega ánægð með hana, og kostar hún bara 1500 kr. En eins og ég sagði, ein svona flaska þegar ég vakna, sem er hálfur líter. Samkvæmt einhverju appi sem ég er með í símanum á ég, miðað við hæð og þyngd, að drekka tvo lítra af vatni á dag, og náði ég því í gær.
Annað sem ég ætla að taka í gegn er svefninn, en ég stefni á að vakna í síðasta lagi kl. 9 alla daga núna, en markmiðið er samt að færa það neðar, í 7 eða 8. Ég hef alltaf átt í svolitlu stríði við svefn, þarf að sofa mikið en á samt sem áður oft erfitt með að sofna á kvöldin. Ég las um daginn að það tæki 21 dag að búa til venju, og vonandi mun það takast í þetta skiptið.
Annars er ég mjög ánægð með þessa áskorun það litla sem búið er af henni, auðvitað langar mig hrikalega mikið í allt sem ég hef ákveðið að borða ekki, einfaldlega þar sem ég “má” ekki fá það. En annars finnst mér þetta einnig vera búið að einfalda mataræðið mitt mjög. Á næstu dögum ætla ég að læra ýmislegt nýtt í eldamennsku og bakstri og deila með ykkur.
Og vitiði, mér finnst maturinn minn svo gómsætur. Hér er ávaxta- og grænmetisskálin sem ég fékk mér í morgunmat í gær með gómsætu tei 😀
Hefur þú áhuga á að vera með? Endilega deildu þinni reynslu hér í athugasemdum 🙂
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á mataræði og verið lengi að velta fyrir mér hvernig mataræði henti mér best, en ég er alla vega viss um að eins og það er í dag er ekki nógu gott fyrir mig og minn líkama.
Ég hef því ákveðið að taka 23 daga í annars konar mataræði, takmörkunarmataræði (sem mun vera íslensk þýðing á orðinuelimination diet), sem er samblanda af svo mörgu sem ég hef lesið. Hér er mjög áhugaverð grein um þetta mataræði, þar sem meðal annars er fjallað um að ekkert eitt mataræði virki fyrir alla, sem er ein aðalástæða þess að ég er að prófa þetta mataræði. Á degi 24 mun ég síðan bæta við einhverju af þessu sem ég sleppti, sem ég hef nú þegar ákveðið að verði egg, þar sem það er það sem ég efast helst um að hafi slæm áhrif á mig. Síðan mun ég bæta smám saman inn öðrum matvælum.
Þetta mataræði er einnig undir áhrifum frá Paleo, Pegan, bókinni 30 dagar og þeirra mörgu greina sem ég hef lesið um að sleppa sykuráti. Ég mun einnig reyna að tengja hér inn margar áhugaverðar greinar sem ég hef lesið um mataræði. Ég hef einnig fjárfest í nýju bókinni eftir Nönnu Rögnvalds, Sætmeti án sykurs og sætuefna, sem ég ætla að nýta mér, þó ég þurfi nú að gera einhverjar breytingar á þeim uppskriftum þar sem þær eru ekki glútenlausar. Það eru því spennandi tímar framundan með mikilli tilraunaeldamennsku 😉
Meðtalinn er dagurinn í dag og til og með 8. júlí. Ég ætla að skrifa um það hér, en ég held að það muni gera mér það auðveldara en er einnig tækifæri fyrir aðra að taka þátt ef áhugi er fyrir því.
Fyrir ykkur sem eruð að hugsa:
“Ógeðslega ömurlegt að hafa svona áskorun yfir sumartímann! Ég meina, grillveislur, pönnukökuát á pallinum, skúffukökur í útilegunni, svo við tölum ekki um allan ísinn!!”
Þá skil ég þá pælingu heilshugar, en þessi tími hentar mér langbest – mér finnst ég algjörlega ófær um að halda úti áskorun sem þessari í allri streitunni sem fylgir því hvað er mikið að gera í skólanum og ég er að fara til Svíþjóðar í haust, og ég ætla ekki að vera í einhverju svona þá. Svo þið sem viljið, getið tekið þátt í þessu.
Málið er einfaldlega það að það er aldrei skortur á afsökunum og ástæðurnar fyrir því að gera þetta ekki eru svo margfalt fleiri og auðfundnari en rök fyrir því að fara í þessar breytingar. Að breyta út af vananum og gera eitthvað nýtt, sem er flóknara og skilar ekki vellíðan samstundis (eins og ísát!) er alltaf erfitt. En ég trúi því að það verði til hins betra, og ætla mér að skilja eftir þessa daga hvaða matur hefur slæm áhrif á líkama minn.
Fyrst af öllu ætla ég (og mæli með því að þið sem viljið vera með gerið líka) að búa til lista yfir allt sem hefur verið að hrjá mig sem ég held að geti mögulega tengst mataræði, til að mynda þreyta, verkir í fótum, höfuðverkur og fleira, en einnig tel ég að það geti verið frelsandi að sleppa sykrinum, þar sem ef ég byrja í namminu vil ég sífellt meira og einfaldlega get ekki hætt!
Ég ætla líka að mæla mig, vigta og taka myndir – því þó markmiðið með þessu mataræði sé alls ekki að létta mig vil ég þó sjá hvort að þar verði einhver munur á.
Næsta mánuðinn ætla ég því að sleppa:
Sykur og gervisætum.
Öllum aukaefnum – rotvarnar-, bragð- o.fl.
Glúten (Hveiti, spelti o.s.frv.).
Mjólkurvörum.
Eggjum (Ég er sjálf ekki alveg sannfærð með þetta, en ætla að láta á það reyna).
Kartöflur.
En mér þykir þó mun betra að einbeita mér að því sem ég “má” borða – eða ætla að borða:
Grænmeti (og nóg af því!).
Ávextir.
Fisk (ennþá meira en ég hef verið að borða).
Kjöt (þó í minna mæli).
Hnetur og fræ.
Hýðishrísgrjón.
Glúteinlaust haframjöl.
Réttar fitur (að mínu mati): Kókosolía, smjör og kaldpressaðar olíur.
Te.
100% súkkulaði (fæst í Heilsuhúsinu).
Ég á síðan örugglega eftir að þurfa að bæta við þessa lista, þar sem ég er veik heima í dag og hausinn er ekki alveg að virka eins og best væri á kosið. Veikindin gera fyrsta daginn bæði erfiðari, þar sem viljastyrkurinn er í lágmarki, en einnig meira hvetjandi, þar sem mig langar mjög að borða hreinna eftir sukk í veislum helgarinnar. En vissulega er ég nokkuð smeyk við að ýta á publish, því þá er ekki aftur snúið 😉
Ég ætla mér síðan að setja inn blogg á hverjum degi í þennan tíma, hvernig þetta gengur og jafnvel að setja inn einhverjar uppskriftir. Ef þú vilt taka þátt í þessu með mér þætti mér vænt um að fá athugasemdir um hvernig þér gengur 🙂
Við ætlum okkur alltaf að verða fullkomin, ekkert má út af bregða. Við verðum ekki ánægð fyrr en fullkomunun er náð og jafnvel ekki fyrr en þá.
Útlitsdýrkun er komin á hátt stig, og sama hversu sterkur maður telur sig vera, þá hefur þetta alltaf áhrif, maður vill alltaf verða betri, verða fullkominn.
Það hefur líklegast ekki farið framhjá neinum hversu mikinn áhuga ég hef á jóga. Jóga snýst um mjög margt, en eitt af því sem hefur verið stór þáttur fyrir mig er aukin líkamsvirðing, loksins er ég farin að elska líkamann minn, ég er orðin sterkari og liðugari, farin að stjórna honum almennilega. Í mörg ár hef ég óskað þess að ég hefði aðra fætur, væri verkjalaus, en auðvitað er það ekki að hjálpa. Það er ekki hægt að laga hluti með því að segja hversu ömurlegir þeir eru, þetta snýst um ást og virðingu.
Og því vil ég deila með ykkur þessu myndbandi, sem ég tók fyrir nokkru síðan og er mjög stolt af. Þarna er ég í fyrsta skipti að ná að halda krákunni, í örfáar sekúndur. Þetta var mikið stökk fyrir mig, ég er mjög stolt af þessu augnabliki og það gaf mér kraft til að halda áfram.
Auðvitað eru margar margar ástæður fyrir að setja þetta ekki inn. Ég er alveg klárlega ekki nógu sólbrún (og verð það örugglega aldrei – enda er það ekki markmiðið!), ég er ekki nógu sterk (ég næ BARA að halda krákunni í nokkrar sekúndur), ég er ekki nógu mjó (af hverju skiptir það öllu máli?), ég er ekki nóg, ekki nóg, ekki nóg… Ég er ekki fullkomin!
Eða það er alla vega það sem maður segir sjálfum sér. En ég er hætt. Ég er nóg. Ég er nógu sterk og mun verða sterkari. Elskaðu líkamann þinn og þú munt fá ástina margfalt til baka! Þú ert nóg!
Eins og sést á þessu myndbandi, ekki segja neitt við sjálfan þig sem þú myndir ekki segja við aðra!
Mér finnst þetta lag og myndband segja meira en þúsund orð 🙂
Einnig vil ég benda á þessar þrjár greinar, sem hafa vakið mig til umhugsunar og geta hjálpað í leiðinni að aukinni virðingu og ást á eigin líkama.
Já, ég sver að þetta er heimsins einfaldasta konfekt 😀
Það er því varla hægt að kalla þetta uppskrift, en þessa aðferð er í raun hægt að nota til að gera hvers kyns konfekt 🙂
Konfektið á myndinni er svona:
70% súkkulaði
Hnetur, t.d. möndlur, kasjúhnetur og pekanhnetur
Ristaðar kókosflögur
Súkkulaðið er brætt í potti og á meðan er hnetum og jafnvel kókosflögum skellt í töfrasprotann eða matvinnsluvélina til að gera eins konar kurl. Síðan er hnetu- og kókoskurlinu hrært saman við súkkulaðið – og það er eins með þetta eins og rice crispies kökurnar, þú munt koma miklu meira magni af hnetum í þetta súkkulaði en þú heldur 🙂
Á myndinni hér fyrir ofan var ég svo dugleg að nenna að búa til kúlur með skeið og setja á bökunarpappír, og setti síðan ristaðar kókosflögur ofan á. Núna geri ég þetta hins vegar öðruvísi, sem er miklu fljótlegra. Ég helli einfaldlega úr pottinum á stórt skurðarbretti og dreifi úr súkkulaðigummsinu, þjappa því niður á plötuna, dreifi kókosmjöli yfir og leyfi því síðan að storkna. Þá sker ég stykkið niður í litla ferninga 🙂
Þessi síðarnefnda aðferð er miklu fljótlegri, en þar fyrir utan er stór kostur. Því þar sem ekki verður allt súkkulaðið að fínum konfektmolum, heldur verður eftir súkkulaðikókosmylsna sem er alveg dásamlegt að setja út á chia grautinn á tyllidögum, eða bara alla daga! 🙂
Það eru engin takmörk fyrir þeim fjölmörgu útgáfum sem hægt er að gera með þessu konfekti, en hér koma nokkrar hugmyndir:
Rjómasúkkulaði, hvítt súkkulaði, suðusúkkulaði, 70% súkkulaði 🙂
Möndlur, kasjúhnetur, pekanhnetur, valhnetur, pistasíur, salthnetur, kókosflögur og kókosmjöl 🙂
Döðlur, apríkósur og rúsínur.
Fyrir nammidagana er hægt að bæta í þetta lakkrískurli, karamellukurli eða smartís svo fátt eitt sé nefnt.
Gangi ykkur vel að gera konfekt, og mér þætti skemmtilegt að fá að vita hvernig til tekst 🙂
P.s. Svo er þetta líka svo ótrúlega hollt með 70% súkkulaði, hnetum, kókos og döðlum að það er hægt að borða þetta án svakalegs samviskubits 😀
Já, ég veit, þetta hljómar eins og ég hafi búið þetta til 🙂 En svo er ekki, þessi morgunmatur er einfaldlega þekktur sem pálumorgunmatur hjá dóttur vinkonu minnar, og því er ekkert vit í öðru en að hann verði kallaður slíkt hið sama hér 🙂
Ég hef skoðað margar mismunandi útgáfur ef svona graut á pinterest en ég er sáttust við þessi hlutföll 🙂
Um er að ræða chia graut 🙂
1/2 bolli mjólk (ég nota kókosmjólk sem keypt er í Krónunni).
1/4 bolli haframjöl (gróft, t.d. gult sogryn eða aðrir heilir hafrar).
1 msk chia fræ (fást í flestum búðum, þó misdýr).
Þessu er öllu skellt í krukku og hrist. Þessi uppskrift passar mér fullkomlega í morgunmat, en vissulega má margfalda hana og setja þá í stærri krukku. Þetta geri ég kvöldið áður og geymi grautinn í ísskáp yfir nótt. Um morguninn bæti ég ýmis konar góðgæti út í, t.d. ávöxtum, kókosflögum og hnetum, og einnig meiri mjólk ef þörf er á.
Á tyllidögum set ég grautinn í fínu bláu skálina mína úr ikea og borða hann heima 🙂
Á myndinni þarna fyrir ofan setti ég ferskju, ristaðar kókosflögur og (já, ég er ekki að grínast) súkkulaðimylsnu sem verður afgangs þegar ég geri konfekt 🙂 Þetta er dásamlega bragðgott og mettandi morgunmatur 🙂 Þegar ég að einhverjum ástæðum næ ekki að gera chia graut í morgunmat er ég svöng allan daginn!
Það er þó ekki nauðsynlegt að gera chia grautinn kvöldinu áður, en ég leyfi honum yfirleitt að vera í ísskápnum í nokkurn tíma áður en ég borða hann.
Hér hef ég sett jarðaber og vínber 🙂
Og síðan kasjúhnetur og kókosflögur ofan á 🙂
Það er í raun ekkert takmark fyrir því hvað hægt er að setja út í chia grautinn og þá er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða ferðinni 🙂 Ég hef mikið sett peru eða epli, en uppáhaldið mitt er mangó, vínber og jarðaber 😀
Chia grauturinn geymist í nokkra daga í ísskáp, en lengur ef hann er ekki með ávöxtum. Ég geri yfirleitt einn skammt í einu þar sem það tekur ekki langan tíma og þá er hann alltaf ferskur morguninn eftir 🙂
Svo, nú er ég full metnaðar að verða duglegri að setja hér inn meira, bæði merkilegt og ómerkilegt, sem hugsanlega getur gagnast öðrum eða er einungis ætlað sjálfri mér 😉
Svo hér með vil ég deila með ykkur dásamlegu sælgæti (já, sælgæti!) sem ég uppgötvaði hér fyrir örfáum vikum, og vil setja hér inn sem sönnun um það að ég hafi fundið þetta upp! Eða ég veit alla vega ekki betur, þetta var algjörlega tilraunastarfsemi við matarborðið eitt kvöldið 😉
Við erum að tala um avókadó sælgæti! Ég er náttúrulega forfallinn avókadó aðdáandi, þó ég hafi þurft nokkra æfingu áður en ég fór að elska það – en þetta gerir avókadó einfaldlega himneskt!
En það er samt varla hægt að kalla þetta uppskrift, en þetta er hugmynd, ráðlegging, aðferð til að gera kvöldmatinn miklu miklu betri 😉
Við erum að tala um að stappa saman avókadó og fetaosti – svo einfalt er það 😀
Og voila!
Í þessu tilfelli er það svo að smakk segir mun meira en myndir, og ég veit ekki alveg hvort myndin segi mikið en þessi orð 😉 Svo smakk er sögu ríkara!
Svo ef ég þyrfti á búa til uppskrift væri hún svona…
Avókadónammigumms:
– 1 avókadó (kaupi þrjú saman, vel þroskuð, í Krónunni)
– Salt og pipar (Dass yfir stappað avókadó)
– 1 msk fetaostur og olía (ég er með bláu fetakrukkurnar, kryddið og olían með eins og vill)
Svona hérna hafið þið það, gott með öllu! Fisk, kjöt, eitt og sér 😉
Og ég er ekkert að ýkja hvað mér finnst þetta gott, hef borðað mörg mörg avókadó síðan mér datt þessi snilld í hug! Við erum að tala um það að ég var búin að setja kokteilsósu á diskinn með kjúllanum þegar ég ákvað að prófa þetta, og endaði með því að vilja þetta mun frekar en kokteilsósuna 😀
Svo ég vona að þið munið elska þetta eins mikið og ég 😀
Þannig er mál með vexti að ég er nokkuð viss um að það sem gerir mig hamingjusama, hlýtur að gera aðra hamingjusama (sem er náttúrulega ekki rétt), og ég hef þess vegna verið að reyna að kenna öllum í kringum mig að hekla, hvatt þá til að gera jóga og svo framvegis.
Ég hef verið að hjálpa Söndru frænku minni að hekla, og var í dag að búa til uppskrift að rúmteppi fyrir dóttur hennar, sem ætlar að hekla. Ég ætla að deila þessari uppskrift með ykkur, sem er samblanda af texta, myndum, myndböndum og teikningum. Vonandi gagnast hún ykkur eitthvað. Ég get þó ekki eignað mér hugmyndina, en ég heklaði þetta eftir mynd sem ég fann á Pinterest, en henni fylgdi engin uppskrift. Það teppi er þó af öllum líkindum heklað með fínni heklunál og garni en ég nota, þannig að þetta er ekki alveg eins.
Hér er mynd af prufudúllunni, með kanti á tveimur hliðum, semsagt dúlla sem yrði í einu horninu á teppinu:
Þetta tiltekna teppi á að vera 60×120 cm á stærð, og passar á rimlarúm. Ein dúlla er 15×15 cm á stærð og kanturinn er 2-3 cm á breidd, svo að þetta teppi mun vera 4×6 dúllur, eða 24 dúllur samtals.
Endilega spyrjið mig ef þið vitið ekkert um hvað ég er að tala, ég reyni að útskýra eins vel og ég get 😉 Ég vek athygli á tenglunum sem ég set inn í færsluna, sem eru ýmist ljós- eða dökkgrænir eftir því hversu mikilvægir þeir eru.
Garn:
Í þetta teppi fer eftirfarandi garn: Guli liturinn er Trysil Superwash Ullgarn, sem fæst í Byko, en hinir litirnir eru Merino Blend DK sem fæst í Rúmfatalagernum. Seinna kom í ljós að guli liturinn er líka til í Rúmfatalagernum, svo ef hann er til er um að gera að kaupa allt á sama stað. En ef skortur er á garni í Rúmfó, þá er alveg eins hægt að kaupa hvítan og gulan í Byko. Hver dokka er um 50 gr og kostar um 300-400 kr. Ég set inn magnið af garni í einni dúllu, svo það er mögulegt að margfalda þá tölu eftir því sem teppið er stækkað eða minnkað.
Gulur (Trysil nr. 257, Merino DK nr. 55): Í eina dúllu fer rétt svo 1 gr af gulum, 1/2 dokka nóg í teppið.
Hvítur (Trysil nr. 200, Merino DK nr. 1): Í eina dúllu fara um 4 gr af hvítum, 2 dokkur í teppið.
Ljósblár (Merino DK nr. 18): Í eina dúllu þarf um 6 gr af ljósbláum, 3 dokkur í teppið.
Dökkblár (Merino DK nr. 926): Í eina dúllu þarf 3 gr af dökkbláum, um 1 og 1/2 dokka í teppið.
Ljósbrúnn (Merino DK nr. 41): Í eina dúllu þarf um 4 gr af ljósgráum (96 gr í teppið), en reikningsdæmið er öllu flóknara hér. Ljósbrúnn er líka notaður í kant, um 3 gr þegar kanturinn er á einni hlið (16 þannig í teppinu) og um 6 gr þegar um horndúllu er að ræða (4 þannig í teppinu). Svo að af ljósbrúnum þarf 160 gr, sem þýðir 4 dokkur. Teppið verður heklað saman jafnóðum (set þá aðferð inn neðar) sem þýðir að það er ekki þörf á auka garni til að sauma eða hekla saman 🙂
Heklunál:
Númer 4 (Svo fer náttúrulega eftir því hversu fast eða laust þið heklið, hvaða stærð hentar ykkur best).
Dúllan hekluð:
Ef þið eruð óvön að hekla, þá er helsta áskorunin að gera blómið sjálft, blái hluturinn er öllu auðveldari. Hér er teikning af mynstrinu, en ég teikna ekki umferðir nr. 4-6 til enda, þar sem þær eru gerðar alveg eins og umferð nr. 3.
1. umf: Byrjað er á því að gera galdralykkju með gulum (Nokkur fín myndbönd á youtube sem útskýra galdralykkju, reyndar engin með minni aðferð en það skiptir engu). Þegar galdralykkjan hefur verið gerð skal hekla 3 loftlykkjur (í raun fyrsti stuðullinn) og síðan 11 stuðla til viðbótar inn í galdralykkjuna. Tosað í endann á garninu til að loka gatinu og tengt í loftlykkjurnar í upphafi umferðar með keðjulykkju. Þegar búið er að tengja í hring skal slíta bandið frá og draga það í gegnum lykkjuna sem er á heklunálinni.
Galdralykkja, 3 ll, 11 stuðlar í galdralykkjuna, tengt í hring með keðjulykkju.
2. umf: Þetta er líklegast sú umferð sem erfiðast er að útskýra með rituðu máli. Nálinni er stungið á milli tveggja gulra stuðla (skiptir ekki máli hvar) og hvítt garn er dregið í gegn. Þessu næst eru gerðar 4 loftlykkjur. Blöðin á blóminu eru gerð með opnum tvöföldum stuðli, ég ætla að reyna að útskýra hvernig það er gert. Myndbandið sýnir hvernig venjulegur tvöfaldur stuðull er gerður, en þessi er aðeins frábrugðinn. Þegar 4 loftlykkjur hafa verið gerðar, er bandinu brugðið tvisvar um nálinu og stungið niður á sama stað og loftlykkjurnar voru gerðar. Þá skal ná í bandið og fara í gegnum tvær lykkjur, og síðan aftur náð í bandið og dregið í gegnum tvær. Þá eru tvær lykkjur eftir af nálinni, en í stað þess að draga band í gegnum þær tvær er aftur slegið tvisvar upp á nálinu og það sama endurtekið. Þá ættu að vera þrjár lykkjur á nálinni, en þá skal sækja bandið og draga það í gegnum allar lykkjurnar. Þá er ein loftlykkja gerð. Endurtekið út umferð, þ.e. þrír tvöfaldir opnir stuðlar og ein loftlykkja til skiptis samtals tólf sinnum, og síðan tengt í hring með keðjulykkju og slitið frá.
4 ll í stuðlagat, 2x tvöfaldur opinn stuðull, 1 ll *3x tvöfaldur opinn stuðull, 1 ll. Endurtekið frá * út umferð.
3-4. umf: Þá hefst hin hefðbundna ömmudúlla. Nálinni er stungið á milli blaðanna á blóminu, ljósblár er dreginn í gegn og 3 loftlykkjur gerðar (í raun fyrsti stuðullinn). Þessu næst eru tveir stuðlar heklaðar í sama gat, 3 loftlykkjur heklaðar, og 3 stuðlar í sama gat. Þetta er hornið á dúllunni. Þessu næst er 1 loftlykkja hekluð og síðan 3 stuðlar í næsta gat. Ferningur er heklaður utan um blómið, 3 stuðlar og 1 loftlykkja á hliðum ferningsins og 3 stuðlar, 3 loftlykkjur og 3 stuðlar í hornum ferningsins. Þegar þetta er gert er sniðugt að nota teikninguna af uppskriftinni, þar sést vel hvar á að hekla með bláa litnum. Í lokin er tengt í loftlykkjur í upphafi umferðar með keðjulykkja. Síðan er farið í næstu tvo stuðla með keðjulykkjum til að færa bandið í horn fyrstu bláu umferðarinnar, þar sem byrjað er á næstu umferð. Þá eru heklaðar 3 loftlykkjur og endurtekið eins og í fyrri umferð. Fyrri ljósbláa umferðin hefur 16 stuðlahópa (þ.e. 3 stuðlar í eitt gat), en seinni umferðin hefur 20 stuðlahópa.
5. umf: Heklað með dökkbláum, eins og fyrri umferðir, 24 stuðlahópar.
Dúllurnar heklaðar saman:
Þegar 24 dúllur hafa verið gerðar svona, þ.e. dökkblái hlutinn hefur verið kláraður, er tími til kominn að hekla teppið saman, sem verður gert í síðustu umferð dúllunnar með ljósbrúnum lit og notast verður við þessa aðferð, fyrir utan það að ekki verður notast við tvöfalda stuðla í hornunum eins og er gert í þessum útskýringum (vegna þess að þar eru hringir heklaðir saman) og í hornunum verða þrjár loftlykkjur en ekki tvær. Þegar teppið hefur verið heklað saman er kantur heklaður á með sama ljósbrúna lit (og því engin ástæða til að slíta bandið frá á milli).
Ef ykkur þykir betra að hekla eftir myndböndum þá er hér svipuð aðferð til að hekla saman sýnd með fjórum myndböndum. Ég vil bara vekja athygli á því að hún notar fastalykkjur til að tengja dúllurnar saman, en ekki keðjulykkjur eins og ég. Persónulega finnst mér fallegra að nota keðjulykkjurnar, þar sem fastalykkjurnar standa töluvert út. Einnig vil ég benda á að í þessu myndbandi koma hornin ekki jafn vel út og í aðferðinni sem ég notaði, svo ég mæli með því að þið skoðið hana einnig.
Kanturinn heklaður:
Kanturinn er heklaður í hring, en á myndunum er hann heklaður fram og til baka og því er fyrri umferðin á röngunni. Fyrst er heklað utan um allt teppið líkt og gert var utan um dúllurnar með dökkbláum, þ.e. þrír stuðlar settir í hvert gat með einni loftlykkju á milli, og tveir stuðlahópar settir í hornin með þremur loftlykkjum á milli.
Í seinni umferðinni er “blúnda hekluð”, þar sem í fyrsta gat á milli stuðlahópa set ég 7 stuðla, og í næsta stuðlagat er tengd keðjulykkja, en það myndar svona boga. Ég gerði teikningu til að útskýra mynstrið á hliðunum, en hef ekki gert teikningu til að útskýra hornin, geri það ef óskað er eftir því.
Hornið er síðan dálítið púsl, þar sem ég tengi keðjulykkjuna inn í miðjan stuðlahópin öðru megin við hornið, síðan set ég 7 stuðla í hornið, og tengi síðan keðjulykkju í miðjan stuðlahópinn hinum megin við hornið. Ég er búin að gera myndband þar sem þetta sést vel.
Uppskriftin sjálf er núna komin hér inn, endilega látið mig vita ef það þarf að útskýra eitthvað betur, en hérna fyrir neðan set ég inn nokkur góð ráð, þá sérstaklega fyrir þá sem eru algjörir byrjendur í hekli.
Annað gagnlegt:
Þegar verið er að skipta svona oft um lit, eins og gert er í þessum dúllum, er mikilvægt að réttan snúi alltaf fram, frekar en að litirnir séu sitt á hvað á réttunni eða á röngunni. Það er mjög auðvelt að sjá hvaða hlið er réttan og hvaða hlið er rangan þegar stuðlar eru heklaðir, en ég set hér inn myndir sem sýna það vel.
Svona er réttan:
Og svona er rangan:
Gangi ykkur sem allra best með þetta teppi og látið mig endilega vita ef þið hafið einhverjar spurningar 🙂
———————————Viðbót 26. desember 2014———————————————–
Teppið tilbúið
Eins og áður var sagt heklaði Sandra frænka mín þetta teppi, eftir uppskrift sem ég bjó til, og hér set ég inn myndir af teppinu tilbúnu. Það er þó greinilegt að ég gleymdi að gera ráð fyrir því hversu mikið fastar hún heklar en ég, og var því teppið töluvert minna en áætlað var. Það er því lán að það er annað barn á leiðinni, og verður þetta því ungbarnateppi, frekar en rúmteppi, eins og planið var 🙂
Aðrar útfærslur á litum:
Halla Marinósdóttir sendi mér myndir af tveimur dúllum sem hún gerði eftir uppskriftinni minni, þar sem litirnir voru aðrir. Hér eru þær:
Ef þið heklið eftir þessari uppskrift þætti mér mjög skemmtilegt að sjá myndir af afrakstrinum, hvort sem litirnir eru aðrir eða ekki.
Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem skilst illa, með von um að þessi uppskrift nýtist ykkur sem best 🙂
Eftir að hafa klárað 30 daga áskorunina gerðu ég þau mistök að halda að ég vildi fá smá hvíld eftir að hafa gert jóga á hverjum degi í mánuð. Ég er að segja ykkur það, það voru stór mistök. Mér líður svo miklu betur ef ég geri jóga á hverjum degi, og þó svo að það komi tímar sem ég nenni ekki að gera jóga, þá er svo miklu miklu erfiðara að hætta að gera jóga og að byrja síðan aftur, en einfaldlega að halda áfram þegar löngunin til að hætta kemur. Þá er einfaldlega hægt að gera auðveldara og styttra jóga þegar þannig liggur á manni.
Í páskafríinu var ég enn í basli við að byrja aftur, gerði jóga stundum og stundum, en það var ekki orðið að rútínu. Laugardaginn fyrir páska fæ ég síðan sent nýtt myndband frá Erin Motz (það er skvísan sem er með 30 daga áskorunina), þetta hér:
Þetta myndband finnst mér algjör snilld – og ég vona að ég fái fleiri myndbönd frá henni þar sem engin þörf er á að nota jógamottu eða önnur áhöld, semsagt jóga sem hægt er að gera hvar og hvenær sem er 😉 Inná youtube eru til fleiri myndbönd undir leitarorðunum “Yoga without a mat” en ég hef ekki prófað nein þeirra.
Ég ákvað að prófa þetta myndband úti í 4°C hita í Öxarfirði, svolítið öðruvísi en þessi sól sem hún sýnir í myndbandinu í Flórída. Ég klæddi mig því í útiföt og hélt á símanum og vonaði að netið myndi virka svo ég gæti spilað myndbandið úti. Það gekk upp, en ég er í raun ekki búin að horfa á þetta myndband, heldur bara hlusta á það og fylgja fyrirmælunum, svo það var gott að ég var orðin vön því að hlusta á hana leiðbeina mér um jóga 🙂
Ég set hér inn nokkrar misgóðar myndir – eina af mér að gera jóga og tvær aðrar af því hvernig staðan var þennan daginn 🙂
Með Tungufjallið í bakgrunni 🙂 Útijógað var alveg dásamlegt, að gera jóga með lungun full af fersku (og í þessu tilfelli köldu) lofti er yndislegt. Mér finnst ég fá mun meira út úr æfingunni en ef ég geri hana innandyra, en nákvæmlega hvað það er sem veldur þessu get ég ekki útskýrt.
Svo að niðurstaða mín er sú að það að gera jóga úti er alveg dásamlegt og gerir æfinguna mun betri – þó aðstæður eða hitastig sé ekki með besta móti. Í byrjun maí gerði ég aftur jóga úti, á pallinum heima hjá mér á Sauðárkróki í sólskininu, sem var ennþá betra en þetta. Þá var nógu hlýtt til að vera í íþróttafötunum, ég gat tekið jógamottuna með mér út og fengið orku frá sólinni í leiðinni. Ég held að ég hafi verið tæpan klukkutíma úti í jóga, sem undirstrikar hversu þægilegt það var.
Ég mæli því með útijóga fyrir alla – og myndband eins og þetta sem ég setti inn er góður grunnur þegar jóga er gert án mottu við ýmsar aðstæður. Það er klárt mál að á mínu framtíðarheimili verður góð aðstaða til að gera jóga utandyra, þetta er einfaldlega of gott. Þetta hefur einnig orðið til þess að ég þarf helst að hafa allt opið út þegar ég geri jóga inni, mér finnst skorta allt súrefni innandyra 😉
Nú kom loksins að því að ég fór í mína eigin tilraunastarfsemi í sykur- og hveitilausum bakstri, þó ég hafi verið inn og út úr því mataræði síðasta árið. Ég er ekki að fylgja LKL, en margar uppskriftir án hveitis- og sykurs falla þó í þann flokk. Ég hef verið að prófa mig áfram og athuga hvort þetta mataræði hafi betri áhrif á vefjagigtina.
Í síðustu viku gerði ég sjónvarpsköku úr bókinni hennar Kristu sem tókst ágætlega – en samt þörf á annarri tilraun. Mér fannst hún eiginlega fullsæt, sem mér finnst svolítið fyndið 🙂
Núna lagðist ég í það að gera bántíköku, en ég hef áður gert uppskriftina úr Kökubók Hagkaupa, sem inniheldur nánast hálft kíló af sykri! Ég ákvað samt að gera bara einn botn, þar sem þetta var algjört tilraunaverkefni 🙂 Ég ákvað þess vegna að taka svona hundrað myndir á símann minn og skella hérna inn með uppskriftinni!
Hér er uppskriftin. Allt saman fæst þetta í krónunni og ég set inn tengil á mynd af þessum fínu sætuefnum 🙂
2 stk eggjarauður 25 gr Sukrin melis (í staðinn fyrir flórsykur)
70 gr 70% súkkulaði (einfaldlega vegna þess að ég átti ekki meira)
30 gr smjör
Aðferð:
Byrjið á því að hita ofninn á 180°C – blástur.
Stífþeytið eggjahvíturnar.
Bætið síðan Sukrin og Steviu út í og þeytið ennþá meira!
Þetta verður svona stífþeytt ef þið gleymið hrærivélinni í gangi á meðan þið kíkið aðeins á fésið 😉 Smakkið til, ef þið viljið hafa þetta sætara þá er um að gera að bæta meira Sukrin út í, en mér fannst þetta fínt – alls ekki jafn sætt og venjulegur marengs samt.
Því næst skal bæta kókosmjölinu úti. Ég veit að þetta virðist ótrúlega mikið, en þetta passar allt saman þegar búið er að blanda þessu saman með sleikju. Svona lúkkaði þetta þegar kókosinn var kominn saman við, hefði kannski átt að fara mér aðeins hægar svo þeytingin héldi sér betur 😉
Skellið í 26 cm álmót/smelluform. Annars var ekkert mál að taka kökuna úr, þannig að ég hefði kannski alveg getað notað sílíkonformin mín.
Því næst er kakan bökuð í 18 mínútur, alls ekki meira. Hún varð vel dökk hjá mér, hefði jafnvel getað bakað hana styttra.
Leyfið botninum að kólna á meðan þið gerið kremið. Þegar formið hefur kólnað aðeins er um að gera að skella botninum á disk, svo hann verði orðinn kaldur þegar kremið er sett á.
Ég verð að viðurkenna að ég hafði mjög takmarkaða trú á að kremið myndi heppnast, þó ég væri nokkuð vongóð með botninn, en það hafðist samt sem áður 🙂
Byrjið á að setja eggjarauðurnar og Sukrin melis í hrærivélina og þeytið eins og enginn sé morgundagurinn. Jafnvel hægt að byrja á þessu á meðan kakan er ennþá í ofninum. Þeytið þar til eggjablandan er orðin stíf og falleg á litinn 🙂
Á meðan skal bræða súkkulaðið og smjörið saman í potti á lágum hita. Ég hefði sett meira súkkulaði ef ég hefði átt það til, samkvæmt mínum útreikningum hefði átt að vera 100 grömm, en þetta kom ágætlega út.
Síðan er súkkulaðiblöndunni og eggjablöndunni blandað varlega saman. Þetta Sukrin melis er sætara en allt, svo ef þið ætlið að nota venjulegt suðusúkkulaði má minnka magnið af því. Ég hélt að ég myndi kannski þurfa að gera kremið aðeins sætara þar sem ég notaði svona dökkt súkkulaði, en hafði mjög rangt fyrir mér.
Dreifið kreminu yfir botninn – og í restina ætti hún að líta svona út.
Ef vilji er fyrir hendi er síðan lítið mál að gera kökuna á tveimur hæðum, og þá tvöfalda uppskriftina af botninum og tvö- eða jafnvel þrefalda uppskriftina af kreminu 🙂
Kakan er mjög góð ein og sér – ég er búin að prófa 😉 – en ef vilji er fyrir hendi er líklegast fínt að borða hana með rjóma. Annars á yfirsmakkarinn eftir að smakka, þar sem hann er í vinnunni.
Svo ég er bara nokkuð ánægð með þessa fyrstu tilraun, og vona að þær verði fleiri. Endilega prófið að gera þessa og látið mig vita hvernig fer og ef eitthvað er óskýrt.
Síðan finnst mér alveg greinilegt, svona þegar sykrinum og hveitinu er sleppt, að þegar ég er búin með eina sneið þá er ég bara sátt, langar ekki að borða alla kökuna eins og vanalega. Og ég er nokkuð viss um að það hefur eitthvað að gera með blóðsykurinn, en ekki að þessi kaka sé eitthvað verri! 🙂
Svo nú er bara spurninin, hvað á ég að gera við tvær eggjarauður?
Núna er rúmt ár síðan ég fór að prófa mig áfram með jóga. Fyrst um sinn notaði ég þettamyndband, reyndi að gera jóga einu sinni á dag, og fann að mér leið betur. Já, og fyrir þá sem ekki vita það, þá er ég með vefjagigt, sem lýsir sér í stanslausum verkjum, nánast að ástæðulausu, og þar af leiðandi lítilli löngun til að hreyfa sig. En málið er einfaldlega að með hreyfingunni líður manni betur.
Síðan prófaði ég hot yoga í World Class á Seltjarnarnesi (Sem er geggjað! bara fulllangt frá Hafnarfirði), í Sporthúsinu (Sem ég var ekki jafnánægð með) og í Hress í Hafnarfirði (Sem er einhversstaðar mitt á milli). Málið er, að fyrir mér er jóga ekki bara líkamleg æfing, þetta er líka andlegt – og á Seltjarnarnesi tókst fullkomlega að blanda þessu saman. Í Hress hef ég einnig farið í venjulegt jóga og warm, sem er ekki í alveg jafn miklum hita. Ég vil vekja athygli á því að ég ætlaði sko ALDREI í hot yoga, þar sem mér líkar illa við mikinn hita, en síðan var það bara dásamlegt og ég fer núna reglulega í heita tíma.
Síðan fór ég að nota þetta myndband sem er alveg dásamlegt, ekkert allt of erfitt og í raun mjög slakandi – 20 mínútur.
En núna er ég búin að finna það sem hentar mér best, það er “30-day yoga challenge”. Það besta er að ég fæ tölvupóst á hverjum degi með myndbandi sem er 10-20 mín, svo það er ekki hægt að nota neinar afsakanir eins og “það er svo langt í ræktina”, “ég hef ekki tíma”, “ég gleymdi þessu” og svo framvegis 🙂 Svo að ég mæli með því að allir skrái sig í þessa áskorun, ég er búin með sjö daga núna og ég finn alveg hvernig mér líður betur.
Í dag byrjaði ég að æfa “Crow pose” eða einfaldlega Krákuna – sem lítur svona út:
Svo núna er bara að æfa sig á hverjum degi þangað til ég næ þessu – en á líklegast eftir að detta nokkrum sinnum á fésið í millitíðinni!
Og einnig langar mig að benda ykkur á þetta myndband, sem er algjörlega í fyrsta sæti hjá mér – og menn ættu að horfa á það svona einu sinni í viku!
P.s. Síðan þarf ég líka að segja ykkur frá Foam flex 😉